Göngum í skólann

Setningarathöfn verkefnisins Göngum í skólann var haldin í Norðlingaskóla í gær.  

Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Viðar Garðarsson, formaður fagráðs Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ tók síðan við, flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. 

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra hvatti nemendur til að vera virk í lífinu og vera dugleg að hreyfa sig. Því næst kenndi Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra nemendum að segja “Göngum í skólann” á táknmáli og vakti það mikla lukku. Næstur tók Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra til máls og hvatti hann nemendur til að vera dugleg að hjóla eða ganga í skólann og draga foreldrana með sér. Því næst tók Guðmundur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn til máls og minnti krakkana á að lögreglan er til staðar fyrir alla og hvatti hann þau einnig til að gleyma aldrei hjálminum þegar hjólað er. Að lokum hvatti Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu nemendur og gesti til að velja öruggustu leiðirnar í og úr skóla. 

Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd.

Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi.

Grunnskólinn á Ísafirði tekur að sjálfsögðu þátt í verkefninu nú sem endranær og hvetur alla til ganga eða hjóla í skólann.

Fjallgöngurnar skipa stóran sess hjá Grunnskólanum á Ísafirði hvað varðar hreyfingu og heilbrigði.

Fjórir árgangar fóru í fjallgöngur í gær, mismunandi erfiðar gönguleiðir. 2.bekkur fór á Hafrafellsháls, 6.bekkur á Sandfell, 7.bekkur að Fossavatni og 9.bekkur á Kistufell.

Fyrir utan fjallgöngur allra árganga þessa dagana, er mikil áhersla lögð á útivist og hreyfingu allan mánuðinn.

DEILA