Framtíðarsýn í fiskeldi: 80 manns á fundi á Patreksfirði – Streymt frá fundi í kvöld

Vestfjarðastofa minnir á fundinn Framtíðarsýn í fiskeldi á Vestfjörðum sem verður á Ísafirði í kvöld.

Fyrri fundurinn var í gærkvöldi á Patreksfirði og mættu rúmlega 80 manns. Tókst fundurinn með eindæmum vel.

Í kvöld er fundurinn á Ísafirði en mikilvægt er að skrá sig á fundinn inn á slóðinni – https://www.vestfirdir.is/is/vestfjardastofa/frettir/framtidarsyn-i-fiskeldi-1 . Fyrir þá sem komast ekki þá mun Viðburðastofa Vestfjarða streyma frá fundinum.

Tengill á streymið má finna hér – https://business.facebook.com/events/229371622484209/

DEILA