Forystumenn flokkanna í Norðvesturkjördæmi í Ríkisútvarpinu

Forystumenn flokkanna í Norðvesturkjördæmi.

Það styttist í Alþingiskosningar og frambjóðendur eru nú á ferðinni landið til að kynna sig og stefnumál flokkanna.

Á þriðjudag sendi Ríkisútvarpið út þátt þar sem rætt var við forystumenn allra tíu framboðanna sem sækjast eftir atkvæðum íbúa í Norðvesturkjördæmi.

Forystumennirnir voru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (Sjálfstæðisflokki), Stefán Vagn Stefánsson(Framsóknarflokki), Bjarni Jónsson (Vinstri grænum), Valgarður Lyngdal Jónsson (Samfylkingu), Bergþór Ólason (Miðflokki), Magnús Davíð Norðdahl (Pírötum), Eyjólfur Ármannsson (Flokki fólksins), Guðmundur Gunnarsson (Viðreisn), Helga Thorberg (Sósíaslistaflokki) og Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir (Frjálslynda lýðræðisflokknum).

 Hægt er að hlýða á þátt RUV með forystumönnum flokkanna í Norðvesturkjördæmi með því að smella hér >

DEILA