Vestfirðir: 16 í einangrun og 71 í sóttkví

Samtals 116 kór­ónu­veiru­smit hafa greinst inn­an­lands eft­ir sýna­töku gær­dags­ins. Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is 

Af þeim sem greind­ust í gær voru 42 í sótt­kví við grein­ingu, rúm­lega 36%. 

Alls eru nú 1.329 í ein­angr­un og 1.941 í sótt­kví. Sex­tán eru á sjúkra­húsi með veiruna.

Á Vestfjörðum eru 16 í einangrun og 71 í sóttkví.

Í tilkynningu á covid.is kemur fram að til að efla varnir gegn delta afbrigði SARS-CoV-2 sem nú er ráðandi og útbreitt í samfélaginu hér á landi hefur sóttvarnalæknir mælt með örvunarbólusetningu þeirra sem fengu eins skammts bóluefni frá Janssen í fjöldabólusetningarátaki gegn COVID-19 í vor. Þeir sem fengu bólusetningu eftir COVID-19 sýkingu þurfa ekki frekari örvun að svo stöddu.

DEILA