Umframafli í júlí á strandveiðum 46 tonn

Myndin sýnir yfirlit yfir umframafla á strandveiðum í júlí. Alls voru 422 skip sem lönduðu umframafla, samtals 46.099 kg. Lóðréttu súlurnar sýna þau 22 skip sem voru með mestan umframafla í júlí, greint niður á vikur.

Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð.

Undantekning er þó ef ufsa er landað sem strandveiðiafla í verkefnasjóð, en þá reiknast ufsaaflinn ekki til strandveiðiafla.

Fiskistofa áréttar að skipstjóri ber ábyrgð á því að skráning á hafnarvog sé rétt og ufsi sem ekki er merktur sem strandveiðiafli í verkefnasjóð reiknast eins og annar bolfiskur. Gögn sem Fiskistofa birtir byggja á fyrirliggjandi aflaskráningu á hafnarvog. 

Leyfi til strandveiða hafa verið gefin út til 688 báta og var landaður afli strandveiðibáta í gær, fimmtudaginn 5. ágúst samtals 10.172.813 kg., sem er 79,32% af þeim heimildum (12.271 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021.

DEILA