Tvö útköll á Vestfjörðum í nótt

Skúta sem legið hafði við akkeri á Hornvík hafði í gærkvöldi samband við sjómælingaskipið Baldur og óskaði aðstoðar Landhelgisgæslunnar. Skútan var þá lögð af stað áleiðis til Ísafjarðar með mjög veikan farþega og fór ástand hans versnandi. Talstöðvasamband við skútuna var slitrótt.

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Gísla Jóns, frá Ísafirði og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út

Baldur kom að skútunni skammt norðvestur af Hælavíkurbjargi. Ákveðið að farþeginn yrði fluttur um borð í Baldur þar sem áhöfnin hlúði að honum. Haldið var á mestu ferð áleiðis til Ísafjarðar og í Aðalvík kom sjúkraflutningamaður af björgunarskipinu Gísla Jóns um borð til aðstoðar sem og tveir björgunarsveitarmenn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin á staðinn á þriðja tímanum og hífði sjúklinginn um borð í þyrluna og flutti á Landspítalann í Reykjavík.

Þá var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna veikinda á Patreksfirði. Þyrlan fór því aftur vestur á firði og kom viðkomandi undir læknishendur í Reykjavík. Þyrlan var komin á Reykjavíkurflugvöll klukkan 7:35 í morgun.

DEILA