Þingeyri: Birta ráðin bankastjóri Blábankans

Stjórn Blábankans hefur ráðið Birtu Bjargardóttur sem næsta bankastjóra Blábankans
á Þingeyri. Birta hefur störf 1. september og verður búsett á Þingeyri frá 1. október nk.

Birta hefur fjölbreytta reynslu af verkefnastjórnun, viðburðastjórnun og upplýsingamiðlun.
Hún hefur meðal annars starfað með umhverfissamtökum, sem forstöðumaður
upplýsingadeildar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sérfræðingur hjá Warner Bros í London,
markþjálfi, sérfræðingur fyrir Breska utanríkisráðuneytið og hefur stofnað og rekið eigið
fyrirtæki á sviði heilsumarkþjálfunar. Birta er með BSc gráðu í dýrafræði og mastersgráðu í
vísinda- og menningarmiðlun.

„Ég er afskaplega ánægð að hafa verið ráðin bankastjóri Blábankans og er virkilega
spennt fyrir starfinu! Blábankinn er frábær vettvangur fyrir nýsköpun og sjálfbærni og
ég hlakka til að þróa starf Blábankans áfram og sjá það blómstra enn frekar. Þetta er
spurning um samstarf og samtal og eitt það fyrsta sem ég stefni á að gera er að hitta
sem flesta á svæðinu – og læra nöfn allra íbúa Þingeyrar fyrir jól!“

Ketill Berg Magnússon er stjórnarformaður Blábankans:
“Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Birtu til að stýra Blábankanum og fylgja eftir því
góða starfi sem þar hefur verið unnið. Blábankinn er nú þegar orðinn fyrirmynd fyrir
samfélags- og nýsköpunarmiðstöðvar annars staðar á landinu og það hefur sýnt sig
að samstarf ríkis, sveitarfélags og einkaaðila virkar vel í svona starfi. Við viljum vaxa
enn frekar og bjóðum hugmyndaríku fólki að koma til Þingeyrar.”

Blábankinn á Þingeyri er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var árið 2017 þegar Landsbankinn
hætti starfsemi á Þingeyri og bauð húsnæðið til starfseminnar. Stofnaðilar voru einkaaðilar,
Ísafjarðarbær og sveitarstjórnarráðuneytið. Nýlega var fjármögnun Blábankans út árið 2024 tryggð með samningum við Arctic Fish, Ísafjarðarbæ og Samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið.

Markmið Blábankans er að skapa alþjóðlegan vettvang fyrir nýsköpun og sjálfbærni og
auka lífsgæði fólks á Þingeyri.

DEILA