Mokafli á strandveiðum

Grafið sýnir meðaltal á dag í þorski - maí, júní, júlí og það sem af er ágúst.

Ekkert lát er á góðum aflabrögðum á strandveiðum, metafli dag eftir dag segir á vef Landssambands smábátaeigenda.  

Á fyrstu 5 dögum í ágúst er meðaltalið í þorski 278 tonn sem er 46%  hærra en það var í júlí.  

Ef fram heldur sem horfir verða útgefin viðmiðun uppurin um miðja næstu viku.

Við þeirri stöðu sem nú blasir við strandveiðisjómönnum er einungis hægt að bregðast á einn veg, að breyta reglugerð og hækka viðmiðun í þorski og koma þannig í veg fyrir ótímabæra stöðvun veiðanna segir á vefsíðu Landssambandsins sem hefur sent ráðherra bréf þessa efnis.

 

DEILA