Körfubolti: Julio de Assis til liðs við Vestra

Körfuknattleiksdeild Vestra hefur samið við framherjann Julio de Assis um að leika með liðinu í úrvalsdeild á komandi tímabili.

Julio de Assis er með spænskt og angólskt ríkisfang og hefur leikið allan sinn feril á Spáni. Hann hefur reynslu úr næst efstu deild á Spáni, LEB-Gold og úr deildinni þar fyrir neðan LEB-Silver auk EBA deildinni þar í landi.

Þá á hann einnig að baki nokkra leiki fyrir angólska landsliðið.

Julio de Assis er 202 cm kraft framherji sem mun styrkja liðið í fráköstum og sóknarþunga inn í teig en hann getur einnig skotið boltanum fyrir utan þriggja stiga línuna.

DEILA