Ísafjörður: Rómantískar nætur á morgun

Ari Ólafsson.

Á morgun halda þeir Ari Ólafsson, tenór og Pétur Ernir Svavarsson, píanóleikari tónleika í Ísafjarðarkirkju kl 20 sem bera yfirskriftina Rómantískar nætur.

Ari er í söngnámi við Royal Academy of music í London og Pétur Ernir stundar nám við Listaháskóla Íslands bæði við söng og píanóleik. Að auki tekur Pétur hljómsveitarstjórnun sem aukafag. Hann stefnir að því að útskrifast næsta vor.

Báðir eru þeir kornungir, Ari fæddur 1998 og Pétur tveimur árum yngri.

Pétur, sem er einnig tenórsöngvari, annast undirleikinn á tónleikunum á sunnudaginn.

Flutt verður blanda af söngleikjalögum, óperíuaríum og ljóðasöng í rómantískum stíl. Verkin eru eftir erlenda höfunda frá ýmsum þjóðlöndum sem sést á því að Ari Ólafsson syngur á fimm tungumálum, á spænsku, þýsku, ítölsku, frönsku, ensku og rússnesku.

DEILA