Ísafjarðarbær: Óskað eftir tilnefningum til bæjarlistamanns 2021

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar óskar eftir tilnefningum til bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar 2021.

Listamenn sem hafa búið í Ísafjarðarbæ um tveggja ára skeið koma til greina sem bæjarlistamenn Ísafjarðarbæjar. Tilnefningunni skulu fylgja rök fyrir því hvers vegna viðkomandi listamaður ætti að hljóta nafnbótina.

Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2020 var Madis Mäekalle, blásturshljóðfærakennari og stjórnandi lúðrasveitar Tónlistarskóla Ísafjarðar.

DEILA