Íbúaþing á Flateyri 3.-5. september

Íbúaþing undir yfirskriftinni „Hvernig Flateyri?“ verður haldið 3.-5. september í íþróttahúsinu á Flateyri.
Upphaflega stóð til að halda þingið haustið 2020 en var frestað vegna hertra samkomutakmarkana.

Til umræðu á þinginu verður allt sem gæti aukið veg byggðarinnar við Önundarfjörð, bætt menningu, atvinnu- og mannlíf.
Þemu fundarins verða ákveðin af fundargestum út frá eftirfarandi þáttum:

Verkefnum sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóði Flateyrar.
Hugmyndavinnu Flateyringa sem fram fór á samráðsgáttinni Betra Ísland fyrr á þessu ári.
Öðrum hugmyndum sem kunna að koma fram á staðnum.
Dagskrá þingsins má skoða í heild sinni hér: Dagskrá íbúaþings

Íbúar, fjarbúar og aðrir sem bera hag byggðarinnar við Önundarfjörð fyrir brjósti eru hvattir til að mæta.

Gert er ráð fyrir að fólk geti mætt á hluta dagskrár sjái það sér ekki fært að taka þátt alla helgina.

DEILA