Flokkur fólksins: Eyjólfur skipar efsta sætið í Norðvesturkjördæmi

Eyjólfur Ármannsson verður oddviti framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Eyjólfur er lögfræðingur að mennt, með meistarapróf í lögfræði frá HÍ og LL.M. frá University of Pennsylvania. Á ferli sínum hefur hann starfað sem lögfræðingur bæði á Íslandi og í Noregi, fyrir m.a. fjármálaráðuneytið, Isavia, Nordea og DNB. Eyjólfur hefur undanfarið gætt hagsmuna landeigenda í Arnarfirði og Dýrafirði í þjóðlendumálum sem eru til meðferðar hjá Óbyggðanefnd. Eyjólfur ólst upp í Vestmannaeyjum en er ættaður úr Lokinhamradal í Arnarfirði þar sem hann var tíðum í sveit sem ungur maður.

Eyjólfur er formaður Orkunnar okkar, samtaka þeirra sem vilja standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. Hann er einn aðalhöfunda sérfræðingaskýrslu samtakanna „Áhrif inngöngu Íslands í orkusamband ESB“.

DEILA