Bólusetningar 12-15 ára barna hefjast í ágúst

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum. Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna sem einnig hefur fengið markaðsleyfi til notkunar fyrir börn á þessum aldri.

Ef allir þiggja boð um bólusetningu þarf um 35.000 bóluefnaskammta til að fullbólusetja allan aldurshópinn. Miðað við birgðir af Pfizer og afhendingaráætlanir á næstu vikum ætti að vera unnt að ljúka bólusetningu hópsins með síðari bólusetningu um miðjan september.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni séu nú að skipuleggja framkvæmd bólusetningar með svipuðum hætti og á höfuðborgarsvæðinu, en þar verður bólusett í Laugardalshöll 23.-24. ágúst.

Embætti landlæknis mun birta nánari upplýsingar varðandi bólusetningar barna og heilsugæslustöðvar í hverju heilbrigðisumdæmi munu birta upplýsingar og auglýsa fyrirkomulag bólusetninga og tímasetningar á hverjum stað.

DEILA