Áhöfn Páls Pálssonar ÍS í sóttkví

Páll Pálsson ÍS. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Frá því er greint á vefsíðu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf í kvöld að skipverji á Páli Pálssyni ÍS  hafi greinst jákvæður í dag eftir að hafa farið í hraðpróf.

Beðið er niðurstöðu úr PCR prófi sem væntanleg er á morgun, föstudag. Þar til niðurstaða liggur fyrir er áhöfnin í sóttkví.

Á sama hátt hefur annar starfsmaður í landi einnig verið greindur jákvæður með hraðprófi og hluti starfsfólks farið í sóttkví þar til niðurstaða liggur fyrir úr PCR greiningu á morgun. Af þeim sökum verður skrifstofa fyrirtækisins í Hnífsdal lokuð á morgun.

DEILA