Þingeyri: auglýst eftir bankastjóra Blábankans

Vestfjarðastofa hefur auglýst eftir forstöðumanni Blábankans á Þingeyri. Hann sér um daglegan rekstur og nýsköpunarverkefni. Þetta er fullt starf sem unnið er undir stjórn Blábankans ses með búsetu á Þingeyri. Blábankinn er ekki fjárhagslegur banki heldur vettvangur fyrir nýsköpun og sjálfbærni á Vestfjörðum. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Sköpun og verkefnastjórn nýsköpunarverkefna

Umsjón og útleiga á vinnurýmum (co-working space)

Umsjón með þjónustu við íbúa og frumkvöðla á þingeyri

Verkstjórn hlutastarfsmanns

 Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af verkefnastjórnun fjölþjóðlegra verkefna.

Færni til að skapa og rækta tengsl við ólíka einstaklinga.

Góð íslensku- og enskukunnátta eru skilyrði.

Sveigjanleiki og framkvæmdagleði og sjálfstæð vinnubrögð.

Þjónustulund og lausnarmiðuð hugsun.

Blábankinn tók til starfa árið 2017 sem samstarfsverkefni milli einkaaðila, ríkis og sveitarfélags og hefur síðan verið fyrirmynd nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðva á Íslandi. Í Blábankanum er góð vinnuaðstaða og tækifæri til að láta til sín taka við uppbyggingu samfélags.

Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnes Arnardóttir í agnes@vestfirdir.is.

DEILA