Það er nóg til – spurningaleikur alþýðunnar á vegum Alþýðusambandsins

Nú yfir hásumarið, þegar landsmenn flestir eru í fríi, eða á leið í frí er oft mikið um skemmtilegar samverustundir.

Alþýðusambandið tók saman nokkrar skemmtilegar spurningar og útbjó spurningaleik sem gaman gæti verið að spreyta sig á í fríinu (eða bara hvenær sem er). Hér er á ferðinni spurningabanki sem getur nýst í geysispennandi spurningakeppnir við fjölskyldu og vini.

Svo er líka bara hægt að keppa við sjálfan sig og fylgjast með stigunum detta í hús.

Spurningaleikurinn hentar bæði fyrir einstaklinga og hópa og hægt er að leika sér á marga vegu með spurningarnar. Hugmyndir að nokkrum útfærslum eru í upphafi leiks, en keppendur geta líka útfært eigin keppnir. Rétt er að nefna að lagt var upp með að setja saman spurningasafn sem hentaði vel fyrir hópa og gætu sumir spurningapakkarnir því verið lítillega snúnir fyrir einstaklinga.

DEILA