Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble á Vestfjörðum

Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble verður á ferðinni á Íslandi í lok júlí og byrjun ágúst. Þema tónleikanna er Aurora, norðurljósin mála fallegar myndir á himnum á dimmasta tíma ársins, eitthvað sem Olga vill gera með röddum sínum. Valin voru uppáhalds lög meðlima Olgu, lög sem vekja þeim innblástur og lög sem vekja upp góðar minningar, lög sem meðlimir hópsins elska að syngja og hlusta á. Á þessum erfiðu tímum langaði hópnum að skapa eitthvað persónulegt, eitthvað sem tengir fólk saman þrátt fyrir þá einangrun sem margir hafa þurft að ganga í gegnum á árinu 2020 og verður hluti af lífi fólks árið 2021. 

Olga Vocal Ensemble er sönghópur sem hefur verið starfræktur síðan árið 2012. Hópurinn hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi sumarið 2013 og hefur heimsótt Ísland á hverju ári síðan, að undanskildu árinu 2020. Hópurinn er skipaður 5 strákum, þrír þeirra eru búsettir í Hollandi og tveir á Íslandi.

Í Olgu Vocal Ensemble eru Hollendingarnar Jonathan Ploeg og Arjan Lienaerts, Englendingurinn Matthew Lawrence Smith, rússneski Bandaríkjamaðurinn Philip Barkhudarov og Íslendingurinn Pétur Oddbergur Heimisson.

Ljós í myrkrinu, fallegur samhljómur, því dimmari sem heimurinn verður, þeim mun skýrar sjást norðurljósin, ,,Aurora”. 

Lagalisti tónleikanna verður fjölbreyttur og má heyra klassísk verk, jazzlög yfir í yfirtónasöng saminn af meðlimum Olgu þar sem má líkja hljómnum sem heyra má við það þegar norðurljósin mála falleg verk á himnum.

Flatey og Ísafjörður

Tvennir tónleikar verða á Vestfjörðum, í Flatey á laugardaginn og á Ísafirði á mánudaginn.

Flateyjarkirkja, Flatey á Breiðafirði, laugardagur 31. júlí kl. 18:00

Ísafjarðarkirkja, mánudagur 2. ágúst kl. 20:00

myndband/lag af disknum: https://www.facebook.com/watch/?v=222185339633884

Miðar á tónleika: www.olgavocalensemble.com/live

Spotify: www.spotify.com/olgavocalensemble

Olga á FB: www.facebook.com/olgavocalensemble

DEILA