Landsbjörg: Samningur um smíði þriggja nýrra björgunarskipa í höfn

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum. Stefnt er að því að skipin verði tekin í notkun fyrir mitt ár 2023.

Smíði á fyrsta skipinu hefst í lok október á þessu ári, en það leysir af hólmi 28 ára gamalt skip sem keypt var nýtt til Vestmannaeyja árið 1993. Afhending á því fer fram fyrir í júnílok 2022, nánar tiltekið á goslokahátíð það ár. Annað skipið verður síðan afhent fyrir lok árs 2022 og það þriðja fyrri part ársins 2023. Ekki kemur fram í fréttatilkynningu Landsbjargar hvar þau skip verða.

KewaTec, sem annast smíðina, er í Kokkola í vestur-Finnlandi og hefur verið starfrækt síðan 1998. Fyrirtækið hefur víðtæka reynslu af smíði vinnu-, slökkvi-, björgunarbáta og farþegaferja.

Björgunarskipin þrjú koma í stað eldri skipa Landsbjargar en félagið gerir út 13 björgunarskip vítt og breitt um landið í samstarfi við björgunarsveitir. Meðalaldur skipanna er nærri 35 ár en til samanburðar miða systursamtök Landsbjargar á Norðurlöndunum flest við að þeirra björgunarskip verði ekki eldri en 25 ára. Meirihluti skipa Landsbjargar er því kominn vel til ára sinna og þarfnast endurnýjunar.

Kaupverð skipanna þriggja er 855.000.000 krónur. Ríkið fjármagnar helming þess og Slysavarnafélagið Landsbjörg og björgunarsveitir hinn helminginn. Aðkoma ríkisins byggir á samkomulagi félagsins við Dómsmálaráðuneytið um að ríkið fjármagni verkefnið að hluta en í upphafi árs rituðu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra, auk dómsmálaráðherra undir viljayfirlýsingu um endurnýjun skipaflotans næstu tíu árin. Hún gerir ráð fyrir endurnýjun sjö skipa til viðbótar næstu sjö árin eftir að smíði fyrstu þriggja skipanna lýkur.

Athöfn vegna undirritunar samningsins fer fram í ágúst á þessu ári en þá munu allir aðilar, sem að verkefninu koma, hittast á Íslandi og fagna þessum stóra áfanga aukinnar björgunargetu á hafsvæðinu umhverfis Ísland.

DEILA