Hólmavík: Café Riis fær mikið lof

Einn af bestu hagyrðingum landsins er Pétur Stefánsson, Reykjavík og er hann mikilvirkur í á sínu sviði og afkastamikill. Hann segir frá því að hann ásamt konu sinni fór á Cafe Riis á Hólmavík og fengu þau sér að borða.

Einkunn hans var þessi: „Toppmatur og góð þjónusta.“ það eru ekki amaleg ummæli.

Og að sjálfsögðu fylgdi góð vísa með:

Kom ég inná Cafe Riis

og keypti úrvals fæði.

Þjónustan er vinur vís

og veitingarnar æði.

Þessa mynd lét Pétur fylgja með:

Og önnur vísa:

Á öndinni stend ég og stika ótt

um Strandir sem fáa svíkur.

-Fengum við hjónin friðsæla nótt

í faðmi Hólmavíkur.

DEILA