Hnúfubakur fór 5400 km á þremur mánuðum

Hvalurinn ISMN1586 í Faxaflóa

Á vef Hafrannsóknarstofnunar kemur fram að þann 19. júní síðastliðinn sást hnúfubakur í Faxaflóa í ferð hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Special tours sem var í kjölfarið gefið númerið ISMN1586.

Vegna þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um skráningu hnúfubaka, sem samtökin BIOS.cv og Frederick Wenzel sjá um, var hægt að sjá að þessi hvalur hafði áður verið myndaður við Grænhöfðaeyjar aðeins þremur mánuðum áður en hann var myndaður í Faxaflóa í um 5400 km fjarlægð.

Alþjóðlegt samstarf er nauðsynlegt þegar það kemur að því að meta far dýra eins og hnúfubaks sem ferðast langar vegalengdir.

Hnúfubakar í Atlantshafi eyða yfirleitt sumrum sínum á fæðuslóð í norðri, til dæmis við strendur Íslands og Noregs. Á veturna halda þeir sig við miðbaug, frá Karíbahafi til Grænhöfðaeyja.

DEILA