Menningarhátíð í Café Dunhaga í sumar

MENNINGARHÁTÍÐ CAFÉ DUNHAGA í Tálknafirði er handan við hornið og hefst um næstu helgi. Rithöfundar, skáld og sviðslistamenn stíga á stokk í gamla samkomuhúsinu. Listamennirnir munu lesa, sýna og tala um verk sín.

Í fréttatiilkynningu frá Café Dunhaga segir að menningarhátíðin sé öllum opin og aðgangur ókeypis. „Það er von okkar að íbúar Vestfjarða sem og ferðamenn geti notið góðs af dagskránni“ segir Hlín Agnarsdóttir rithöfundur.

Lau. 12. júní – Dagný Maggýjar rithöfundur talar um bækur sínar sem eru orðnar sex talsins m.a. Bruninn í Skildi 1935  og Á Heimsenda en í henni fjallar Dagný um sögu móður sinnar sem hún missti í sjálfsvígi.

Fös. 18. júní – Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og sviðslistafræðingur skrifaði m.a. Hilduleik 2020. Í þetta sinn ætlar hún að tala um og les upp úr nýrri bók sem væntanleg er í haust og fjallar m.a. um dvöl hennar í Tálknafirði þegar hún dvaldi þar í sveit á Felli.

Lau. 19. júní – Elísabet Jökulsdóttir skáldkona er landsfræg fyrir ljóð sín og smásögur. Í þetta sinn talar hún um og les upp úr Aprílsólarkuldi en fyrir þá bók fékk hún Íslensku bókmenntaverðlaunin 2020.

Föstudagur 25. júní – Þorvaldur Kristinsson rithöfundur hefur m.a. skrifað ævisögur Lárusar Pálssonar leikara og Helga Tómassonar listdansar. Hér ætlar hann talar um bók sína Ef vin þú átt sem hann skrifaði 1994 um Aðalheiði Hólm Spans frá Eysteinseyri í Tálknafirði en bókin verður endurútgefin í ár.

Föstudag 2. júlí og 3. júlí – Bjarni Snæbjörnsson sviðslistamaður á rætur að rekja til Tálknafjarðar og ólst þar upp sem ungur drengur. Nú frumsýnir hann einleikinn Góðan dag faggi í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir.

9. júlí – Anton Helgi Jónsson er eitt af afkastamestu ljóðskáldum þjóðarinnar og stendur fyrir ljóðavefnum anton.is. Eins og sönnu fjallaskáldi sæmir ætlar Anton Helgi að lesa ljóð og kvæði sem snúast um fjöll og fjallgöngur.

17. júlí – Bergsveinn Birgisson rithöfundur er einn af okkar fremstu rithöfundum, skrifaði m.a. Svar við bréfi Helgu og Lifandi lífslækur. Hér ætlar hann að tala um bók sína Leitin að svarta víkingnum.

Nánari upplýsingar um hvern viðburð má nálgast þegar nær dregur á FB síðu Café Dunhaga

DEILA