Hnífsdalskapella

Hnífsdalskapella. Ljósmynd: Sigurður Herlufsen

Hnífsdalskapella er í Ísafjarðarprestakalli í Vestfjarðaprófastsdæmi.

Í Hnífsdal fóru guðsþjónustur fram í barnaskólanum til 1953, þegar hann fauk í heilu lagi af grunninum í miðri kennslustund í febrúar það ár.  Ekki urðu slys á fólki.

Annar skóli var reistur á sama stað og kapella með.  Kór hennar er í austurenda hússins og orgelstúkan í vesturendanum.  Á milli eru tvær kennslustofur, sem opnast með skilveggjum.  Þá er hægt að bjóða 160 manns til sætis í kapellunni.  Hún var vígð á föstudaginn langa 1955 og er þjónað frá Ísafirði.

Meðal gripa kapellunnar  eru kristslíkan, róðukross, kaleikur og patína úr silfri.

Af vefsíðunni kirkjukort.net

DEILA