Haraldur Benediktsson: tekur ekki annað sætið

Haraldur Benediktsson, alþm. mun ekki taka annað sætið fari prófkjör Sjálfstæðisflokksins svo að hann haldi ekki fyrsta sætinu áfram. Í viðtali hér á Bæjarins besta segir Haraldur:

„Ég hef setið sem oddviti listans og gegnt stöðu fyrsta þingmanns kjördæmisins. Ég hef náð að stilla saman strengi allra þingmanna kjördæmisins til góðra verka. Ég er reiðubúinn að gera það áfram. Feli flokksmenn öðrum það hlutverk er það skýr niðurstaða. Það getur ekki verið gott fyrir nýjan oddvita að hafa þann gamla í aftursætinu.“

https://www.bb.is/wp-admin/post.php?post=55770&action=edit

DEILA