Forsýning á leiksýningu Þjóðleikhússins Góðan daginn faggi á menningarhátíð á Café Dunhaga á Tálknafirði

Sjálfsævisögulegi heimildasöngleikurinn Góðan daginn faggi verður forsýndur á menningarhátíð á Café Dunhaga á Tálknafirði 2. og 3. júlí nk.

Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og leikhópsins Stertabendu og eru höfundar og aðstandendur verksins Bjarni Snæbjörnsson, leikari, Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri og Axel Ingi Árnason, tónskáld.

Góðan daginn faggi er einleikur þar sem fertugur söngleikjahommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.

Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur engan ósnortinn.

Sýningin hefur verið í vinnslu í þrjú ár og unnin í nánu samtali við Tálknfirðinga, en Bjarni Snæbjörnsson ólst upp á Tálknafirði.

Verkið verður eins og og áður segir forsýnt á menningarhátíð á Café Dunhaga 2. og 3. júlí kl. 20:30 þar sem sveitungum Bjarna og öðrum gestum gefst tækifæri til að sjá sýninguna fyrst allra. Ókeypis er inn á sýningarnar en vegna mikils áhuga þarf að skrá sig.

Sýningin verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum 5. ágúst nk. á Hinsegin dögum í Reykjavík.

DEILA