Afli umfram heimildir

 Í sjöttu viku strandveiða 7. júní -. 11. júní lönduðu 268 skip afla umfram leyfilegan heildarafla í veiðiferð, samtals 12.954 kg.

Meðfylgjandi myndi sýnir yfirlit yfir umframafla í sjöttu viku. Bláu súlurnar sýna þau skip sem lönduðu alls 100 kg. eða meira yfir leyfilegt magn í vikunni. Gráu súlurnar sýna heildarmagn umframafla fyrir hvern löndunardag en umframafli var mestur mánudaginn 7. júní sl. eða 5.082 kg.

Grænu súlurnar sýna umframafla eftir svæðum og sem fyrr kemur mestur umframafli á land á svæði A eða rúm  átta tonn. 

Leyfi til strandveiða hefur verið gefið út til 648 báta og er landaður afli strandveiðibáta í dag föstudaginn 18. júní samtals 4.416.851 kg., sem er 38,78% af þeim heimildum (11.100 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021.

DEILA