60 ára fermingarafmæli á Flateyri

Fermingarsystkinin 60 árum seinna. Myndir og upplýsingar frá Kristjáni Pálssyni.

Fermingarsystkin sem fermd voru 28.maí 1961 ásamt mökum, komu saman á Flateyri 5.júni 2021 í tilefni á 60.ára fermingarafmælinu. Þau sem ekki áttu heimangengt voru Guðmundur Pálmason býr í Kananda, Marta Greta Haraldsdóttir, Jensína Janusardóttir.

Myndin var tekin við kirkjuna. gengið um Flateyri, þegnar veitingar í sumarhúsi Hinriks og Ástu á Flateyri, farið í kaffi hjá Halldóri og Guðrúnu í Breiðadal, og svo kvöldverður og gisting í Holti og rifjað upp gamlar minningar um leik og störf á Flateyri.

Prestur var séra Jón Ólafsson í Holti.  Tvö fermingarsystkin eru látin, Kristín Björnsdóttir og Hinrik Jón Magnússon.




Neðri röð frá vinstri: Jensína Janusardóttir, Júlíus Rafnsson, Hinrik Greipsson, Kristján Pálsson, Guðmundur Pálmason, Guðbergur Guðnason
 
Efri röð frá vinstri: Arndís Gunnlaugsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Marta Greta Haraldsdóttir, Sunneva Traustadóttir, Halldór Mikkaelsson,                           Magnús H Guðmundsson, Dagur S Ásgeirsson, Hinrik Jón Magnússon.
Prestur séra Jón Ólafsson í Holti. 
DEILA