Vesturbyggð fær bláfánann

Vesturbyggð fékk afhentan á miðvikudaginn Bláfánann fyrir smábátahafnirnar á Patreksfirði og í Bíldudal. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun í boði fyrir baðstrendur, ferðaþjónustubáta og smábátahafnir og þurfa umsækjendur sem hljóta Bláfánann að hafa staðist strangar kröfur á sviði umhverfismála, öryggis, fræðslu og samfélagslegrar ábyrgðar. Niðurstöður úttekta eru staðfestar af innlendri vottunarnefnd skipaðri aðilum sem er sérfræðingar hver á sínu sviði auk alþjóðlegrar vottunarnefndar sem tryggir sambærileg gæði á kröfum og úttektum um allan heim.

Þetta er níunda árið í röð sem Patrekshöfn hlýtur þessa vottun og hið áttunda hjá Bíldudalshöfn. Hafnirnar í Vesturbyggð hafa þá sérstöðu að vera nyrstu Bláfánastaðir heims en fara þarf til Suður Afríku til að finna þær syðstu. Glöggir landsmenn sem ferðast hafa til Kanaríeyja hafa eflaust rekið augun í Bláfánann á þeim tæplega 40 ströndum sem þar eru vottaðar, til viðbótar við smábátahafnir og ferðaþjónustubáta. Líkt og smábátahafnir Patrekshafnar og Bíldudalshafnar eiga þeir staðir sem flagga Bláfánanum það sameiginlegt að leggja mikið af mörkum til umhverfismála og gæta að öryggi notenda og vegfarenda sinna svæða. Það getur því borgað sig að fylgjast með hvar Bláfáninn blaktir við hún þegar velja á afþreyingu eða áningarstað við sjávarsíðuna.

Það var hafnarstjóri Vesturbyggðar, Elfar Steinn Karlsson (t.v.) sem tók við Bláfánunum tveimur úr hendi Ragnars Þórðarsonar (t.h.) frá Vottunarstofunni Túni ehf. sem fer með framkvæmd og eftirlit Bláfánans á Íslandi.

DEILA