Vestri mætir Tindastóli í fyrstu deild kvenna

Meistaraflokkur kvenna tekur á móti Tindastól í 1. deild, laugardaginn 1. maí, kl. 15:00. Takmarkaður fjöldi áhorfenda er leyfður vegna sóttvarnarráðstafana. Miðasala á Stubbi fyrir fullorðna og ókeypis fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem fædd eru 2005 og síðar. Miðasala er eingöngu rafræn í gegnum smáforritið Stubb. Hægt er að nálgast Stubb fyrir bæði Android síma og I-phone:

Stubbur fyrir Android

Stubbur fyrir I-phone 

Leikurinn verður einnig sýndur í beinni útsendingu hjá Viðburðastofu Vestfjarða.

Hægt er að kaupa styrktarmiða í Stubbi. Gestir eru beðnir um að virða gildandi sóttvarnarreglur: –

Grímuskylda er á leiknum
– 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila
– Gestir skulu ekki fara úr sætum sínum að óþörfu á meðan á leik stendur og í hálfleik
– Óheimilt er með öllu að fara inn á keppnissvæði

DEILA