Skaginn 3X hannar nýtt vinnslukerfi í loðnuvinnslu sem eykur afköst um 70%

Frá vinstri: Þorri Magnússon - framleiðslustjóri (LVF), Friðrik Mar Guðmundsson - framkvæmdastjóri (LVF), Ingvar Vilhjálmsson - svæðissölustjóri (Skaginn 3X), Steinþór Pétursson - skrifstofustjóri (LVF), Einar Brandsson - söluhönnuður (Skaginn 3X), Rúnar Björn Reynisson - vélahönnuður (Skaginn 3X).

Nýlega undirrituðu Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði, LVF, og Skaginn 3X samning um nýtt vinnslukerfi LVF sem auka mun sjálfvirkni og vinnslugetu. Stefnt er að því að auka afköst vinnslunnar í allt að 400 tonn á sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. Nýja kerfið er hannað til að framleiða hágæða vöru á sem hagkvæmastan hátt.
Frystihús LVF á Fáskrúðsfirði er sérhæft til vinnslu á uppsjávarfiski, loðnu, síld og makríl. Loðnan er heilfryst á markaði í Austur-Evrópu og Asíu en einnig eru hrogn unnin fyrir sömu markaði.

Tímasetningin skiptir höfuðmáli

Þar sem uppsjávarvinnsla er háð viðkvæmum ytri þáttum eins og árstíðabundinni auðlind er mikilvægt að ná að nýta hana á réttum tíma og með réttum aðferðum. Tæknilausnir Skagans 3X eru því hannaðar til að viðhalda gæðum vörunnar og ná með því hámarksafrakstri í vinnslu. Með þessum endurbótum verður fyrirtækið mun betur í stakk búið til þess að nýta auðlindina sem best á næstu vertíðum.

Náið samstarf

„Það skiptir miklu máli að geta unnið svona náið með hönnuðum Skagans 3X eins og við höfum gert í þessu verkefni,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri LVF. „Sérfræðiþekking þeirra og reynsla okkar hefur skilað sér í lausn sem mun bæði auka sjálfvirkni og bæta framleiðslugetuna í uppsjávarfrystingunni hjá okkur.“

Sérfræðingar í heildarkerfum í uppsjávarvinnslu

Í fréttatilkynningu frá Skaganum 3X segir að Skaginn 3X hafi mikla reynslu í hönnun og uppsetningu á stórum heildarkerfum fyrir uppsjávarvinnslu. „Það tók því ekki langan tíma fyrir þrjá sérfræðinga fyrirtækisins að hanna kerfið fyrir LVF. Þeir mættu austur, teiknuðu kerfið upp á staðnum og tæpum mánuði seinna var samningur undirritaður.“

DEILA