Merkir Íslendingar – Jónas Ólafsson

Jónas Ólafsson fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð þann 20. júlí 1929.

Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson húsasmíðameistari, f. 12. maí 1892, d. 30. desember 1967, og Elínborg Sveinsdóttir, símstöðvarstjóri á Þingeyri, f. 12. október 1897, d. 11. maí 1955.

Jónas kvæntist Kristínu Nönnu Magnúsdóttur 7. nóvember 1954 en hún er fædd 4. Janúar 1930. Foreldrar hennar voru Magnús Amlín Ingibjartsson framkvæmdastjóra á Þingeyri og Ingunn Elín Angantýsdóttir.

Börn Jónasar og Nönnu eru:

  1. Magnús, f. 3. september 1953,

 2. Angantýr Valur, f. 19. apríl 1955,

 3. Ingunn Elín, f. 11. febrúar, 1957,

4. Kristinn, f. 30. september 1965,

5. Steinar Ríkarður, f. 6. október 1966.

Jónas fór ungur í sveit á Skarði á Skarðsströnd en lærði síðan vélvirkjun í Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri og vann þar um skeið. Starfaði síðan við verslunarrekstur í nokkur ár.

Jónas var kjörinn í hreppsnefnd Þingeyrarhrepps 1966 og sat í hreppsnefnd til 1996. Tók síðan við starfi sveitarstjóra á Þingeyri 1971 og gegndi því starfi til ársins 1996 eða í 25 ár.

Jónas sat í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 1996-1998 og gegndi starfi bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar síðasta árið.

Jónas gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum, var formaður stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga, átti sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og sat í stjórn Hafnarsambands Íslands.

Á yngri árum tók hann mikinn þátt í íþróttastarfi á ýmsum sviðum og keppti sjálfur. Í mörg ár hélt hann kindur sér til mikillar ánægju og var mikil áhugamaður um sauðfjárrækt allt til dauðadags.

Jónas Ólafsson lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði þann 27. apríl 2016.

Útför Jónasar fór fram frá Þingeyrarkirkju þann 7. maí 2016.




Skráð af Menningar-Bakki.

DEILA