Fimm tilboð bárust vegna útboðs á varðskipinu Freyju

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra og Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar

Nýlega efndu Ríkiskaup og Landhelgisgæsla Íslands til útboðs vegna kaupa á varðskipinu Freyju. Fimm tilboð bárust frá Atlantic Shipping A/S, C‐solutions ehf, Havila Shipping ASA, Maersk Supply Service A/S og United Offshore Support GmbH. Tilboð voru opnuð á miðvikudagrog nú er unnið að því að meta þau.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, tilkynnti í mars að nýlegt varðskip yrði keypt fyrir Landhelgisgæsluna síðar á árinu. Starfshópur hóf strax undirbúning kaupanna.

Dómsmálaráðherra lagði til að varðskipið fengi nafnið Freyja en fram að þessu hafa varðskip Landhelgisgæslunnar öll borið karlmannsnöfn úr norrænni goðafræði.

Landhelgisgæslan tók vel í hugmyndina og hefur þegar tryggt sér einkarétt á skipsnafninu Freyju hjá Samgöngustofu. Gert er ráð fyrir að varðskipið Freyja verði komið til landsins fyrir næsta vetur.

Tilboðin voru eftirfarandi:

Atlantic Shipping A/S 1.100.000.000 ISK

C‐solutions ehf 1.491.000.000 ISK

Havila Shipping ASA 13.627.000 EUR

Maersk Supply Service A/S 10.000.000 USD

United Offshore Support GmbH 1.753.049.250 ISK

DEILA