Ferðafélag Ísfirðinga – fyrsta ferð sumarsins

Söguferð um Þingeyri og ganga upp á Sandafell laugardaginn 15.maí. Gangan hefst kl. 10:00 við íþróttamiðstöðina.

Fyrsta ganga sumarsins er skemmtileg söguferð um Þingeyri og ganga upp á Sandafell. Leiðsögumaður verður Gunnhildur Björk Elíasdóttir sem þekkir hverja þúfu og hvern stein á svæðinu. Þeir sem ætla í gönguna af norðursvæðinu geta sameinast í bíla á planinu við Bónus á Ísafirði en þaðan verður lagt af stað kl. 09:30.

DEILA