Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir eftir umsóknum

Umhverfissjóður sjókvíaeldis hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til rannsókna sem styðja við markmið sjóðsins um lágmörkun umhverfisáhrifa af völdum sjókvíaeldis.

Umhverfissjóður sjókvíaeldis starfar samkvæmt lögum um fiskeldi, og er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Samkvæmt reglugerð um Umhverfissjóð sjókvíaeldis skal stjórn sjóðsins taka ákvörðun um forgangsröðun verkefna við úthlutun hvers árs. 

Við mat á umsóknum við úthlutun árið 2021 munu njóta forgangs rannsóknarverkefni á laxalúskynlausum eldisfiskum (genaþöggun) og orkuskiptum í sjókvíaeldi.

Eftir sem áður styrkir sjóðurinn verkefni á sviði burðarþolsmats og vöktunar.

Stofnanir, fiskeldisfyrirtæki, einstaklingar og lögaðilar geta sótt um styrki til sjóðsins og er umsóknarfrestur til 28. maí.

DEILA