Þórdís Kolbrún kynnir uppbyggingu á Fyrirmyndaráfangastöðum

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, kynnir uppbyggingu Fyrirmyndaáfangastaða í beinu streymi miðvikudaginn 21. apríl kl. 14:00 (vinsamlegast athugið breyttan tíma).

Ráðherra mun einnig kynna hvaða fjórir staðir eru í ferli til að verða Fyrirmyndaráfangastaðir og hvernig unnið verður með stöðunum að innleiðingu á vörumerkinu.

Fyrirmyndaráfangastaðir eru fjölsóttir áfangastaðir sem ferðamenn sækja allt árið um kring. Við umsjón þeirra er unnið að sjálfbærni á öllum sviðum, umhverfislegri, samfélagslegri og efnahagslegri.

Staðirnir þurfa að sýna fram á langtímaskuldbindingu til þess að framfylgja skilgreindum viðmiðum við stjórnun og skipulagningu m.a. hvað varðar hönnun innviða, aðgengi, fræðslu, öryggi, álagsstýringu, stafræna innviði o.fl.

https://youtu.be/KwhwOJE7KeQ
DEILA