Sveitarstjóra í Strandabyggð sagt upp störfum

Þorgeir Pálsson, fyrrv. sveitarstjóri lengst til hægri. Aldis Hafsteinsdóttir, formaður Sambands ísl sveitarfélaga lengst til vinstri og Bryndís Sigurðardóttir fyrrv. sveitarstjóri á Tálknafirði í miðjunni. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur sagt Þorgeiri Pálssyni sveitarstjóra upp störfum. í tilkynningu frá sveitarstjórn kemur fram að ólík sýn á stjórnun og málefni sveitarfélagsins hafi orðið þess valdandi að leiðir sveitarstjórans og sveitarstjórnar liggja ekki lengur saman. Samstaða er í sveitarstjórn um ákvörðunina. Ekki er óskað eftir því að Þorgeir vinni uppsagnarfrest sinn sem eru þrír mánuðir og hefur hann þegar látið af störfum.

Sveitarstjórn hyggst taka sér nokkra daga til að ákveða næstu skref. Skrifstofa Strandabyggðar tekur við erindum og málum og sveitarstjórn mun verða starfsfólki til aðstoðar við úrlausn mála.

Sveitarstjórn þakkar Þorgeiri fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í nýjum verkefnum segir í tilkynningunni að lokum.

Þorgeir Pálsson er fimmti sveitarstjórinn sem lætur af störfum á Vestfjörðum á þessu kjörtímabili. Áður hafa hætt Pétur Markan sveitarstjóri í Súðavík, Bryndís Sigurðardóttir sveitarstjóri á Tálknafirði, Tryggvi Harðarson sveitarstjóri á Reykhólum, Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ og nú Þorgeir Pálsson.

DEILA