Semja á við Fisktækniskólann í Grindavík um fisktækninám

Fisktækniskólinn menntar fólk til starfa við fiskveiðar, fiskvinnslu og fiskeldi og er ráðgert að samningur við skólann verði til 5 ára og byggi á grundvelli 44. gr. framhaldsskólaga nr. 92/2008 og 40. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2015.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hyggst gera samning um fisktækninám og annað nám tengt því við Fisktækniskóla Íslands, með fyrirvara um staðfestingu fjármála- og efnahagsráðherra.

Áætlað er að samningurinn muni taka gildi 1. ágúst 2021 og að ríkið greiði 71 milljón króna á ári til að standa undir rekstri skólans.

Kynning á þessari samningsgerð er nú í samráðsgátt og skulu athugasemdir berast ráðuneytinu fyrir 20 apríl nk. (mrn@mrn.is).

DEILA