Ný tækifæri í Evrópusamstarfi verða kynnt í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 15. apríl kl. 14:00-16:00, þegar nýrri kynslóð samstarfsáætlana ESB í umsjón Rannís, verður hleypt af stokkunum.
Á hátíðinni verður farið yfir helstu nýjungar og styrkjamöguleika Erasmus+ á sviði menntunar, æskulýðsmála og íþrótta, Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlunarinnar, European Solidarity Corps fyrir sjálfboðaliða- og samfélagsstarf ungs fólks og Creative Europe á sviði skapandi greina.
Kynnið ykkur tækifæri og styrki á vegum Erasmus+, Horizon Europe, European Solidarity Corps og Creative Europe.
Einnig verður litið um öxl og góðum árangri síðustu ára fagnað í óformlegu spjalli við styrkþega sem segja sínar sögur.
Loks verður sagt frá vinnustofum og nánari kynningum um hverja áætlun sem skipulagðar verða í framhaldinu
Hlekkur á streymið: