Ráðgjöf í grásleppu 9040 tonn-Veiðidagar 40 voru 25

Hafrannsóknastofnunar ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2020/2021 verði ekki meiri en 9040 tonn.

Er það um 74% hækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2021 en hún var sú hæsta frá upphafi mælinga 1985.

Stofnvísitölur hrognkelsa sveiflast milli ára sem endurspeglar að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2021/2022 verði 3174 tonn.

Þessi aukning hefur orðið til þess að sjávarútvegsráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2021 þar sem veiðidögum er fjölgað úr 25 í 40.

DEILA