Merkir Íslendingar – Guðmundur Guðmundsson

Guðmundur Guðmundsson fæddist í Hnífsdal þann 11. apríl 1916 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Guðmundur Stefán Guðmundsson formaður í Hnífsdal og k.h. Jóna Salómonsdóttir húsmóðir.

Guðmundur fór ungur til náms í Héraðsskólann á Laugarvatni. Vélstjóraréttinda aflaði hann sér á Ísafirði og skipstjórnarréttinda frá Sjómannaskólanum í Reykjavík. Kornungur varð hann skipstjóri, fyrst á Bryndísi ÍS og síðar Hafdísi ÍS. Guðmundur var hafnsögumaður á Ísafirði um árabil.

Árið 1954 sneri hann sér að útgerð og fiskvinnslu og stofnaði síðan Hrönn hf. ásamt fleirum. Guðmundur var lengi í forsvari fyrir útgerð Guðbjargar ÍS en Hrönn hf. gerði út mörg skip með þessu nafni. Guðmundur starfaði við útgerðina fram á níræðisaldur. Hann var formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða 1963-87 og í stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna um langt árabil. Hann var lengi stjórnarmaður í Kaupfélagi Ísfirðinga, Íshúsfélagi Ísfirðinga hf., Olíusamlagi útvegsmanna og Vélbátaábyrgðarfélagi Ísfirðinga.

Guðmundur lét til sín taka í tónlistarlífi Ísafjarðar og starfaði mikið að slysavörnum og björgunarmálum. Í áratugi var hann formaður karladeildar SVFÍ á Ísafirði. Hann tók virkan þátt í starfi Frímúrarareglunnar á Ísafirði og í Reykjavík í hartnær 60 ár.

Hann var heiðursfélagi Sjómannafélags Ísfirðinga, heiðursfélagi SVFÍ, hlaut heiðursmerki Frímúrarareglunnar og riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu.

Eiginkona Guðmundar var Guðrún Jónsdóttir húsmóðir, f. á Langeyri í Álftafirði 12.12. 1916, d. 15.11. 1981. Foreldrar Guðrúnar voru Jón Bjarnason trésmiður og k.h. Daníela Jóna Samúelsdóttir húsmóðir. Guðmundur var síðar í sambúð með Margréti Helgu Gísladóttur, f. 3.4. 1924, d. 28.6. 2009.

Dætur Guðmundar og Guðrúnar eru Bryndís, f. 1943, Jóna Margrét, f. 1945, og Ingibjörg, f. 1950.

Guðmundur Guðmundsson lést í Reykjavík þann 13. nóvember 2015.

Skráð af Menningar-Bakki.

DEILA