Margir bólusettir í síðustu viku

 

Margir voru bólusettir í síðust viku og á fimmtudaginn 8. apríl voru um 6.630 einstaklingar bólusettir við COVID-19, þar af 2330 með bóluefni Pfizer/BioNTech og 4301 með bóluefni Oxford/AstraZeneca.

Þetta er stærsti bólusetningardagur á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi. Þessi fjöldi nemur tæplega 2,4% þeirra 280 þúsund einstaklinga sem til stendur að bólusetja við COVID-19.

Nú hafa því 58.567 einstaklingar fengið a.m.k. einn skammt af bóluefni eða um 21% af heildarfjöldanum. Miðað við staðfestar áætlanir um afhendingu bóluefna gegn COVID-19 í apríl má vænta þess að um mánaðamótin apríl/maí verði um 90 þúsund einstaklingar búnir að fá a.m.k. einn skammt eða um þriðjungur þeirra sem til stendur að bólusetja.

DEILA