Kosning um fugl ársins 2021 er komin á flug!

Sanderlan náði ekki inn á topp 20 listann en er engu að síður merkilegur fugl. Mynd: Fuglavernd.

Kosning um fugl ársins 2021 er hafin. Valdar hafa verið 20 fuglategundir sem koma til greina.

Atkvæði eru tekin að streyma inn eins og farfuglar að vori og er strax ljóst að um spennandi kosningu verður að ræða segir í fréttatilkynningu frá Fuglavernd.

„Þeir 20 fuglar sem keppa um titilinn í ár hafa nú flestir orðið sér úti um kosningastjóra en rjúpa, stari og svartþröstur flögra þó enn í lausu lofti án sérstakra talsmanna. Það er fjölbreyttur og fagur hópur fólks úr öllum áttum og af öllum aldri sem hefur tekið að sér að stýra oddaflugi hinna fuglanna í keppninni. Margir hafa komið upp samfélagsmiðlasíðum fyrir fuglana sína sem Fuglavernd hvetur fólk eindregið til að fylgja.“

Kosningin stendur til kl. 18 þann 18. apríl 2021 og eru fuglavinir hvattir til að taka þátt og gefa sínum fugli byr undir báða vængi.

Slóð á kosninguna:

http://www.fuglavernd.is/fugl-arsins

Tegundirnar 20 eru eftirfarandi ásamt upplýsingum um kosningastjóra þeirra:

FuglKosningastjóriNetfang
GrágæsKolbeinn Sæmundur Hrólfssonksh22@hi.is
AuðnutittlingurGuðni Sighvatssongudni10@gmail.com
LundiSunna Dís Kristjánssunnadis@engidalsskoli.is
HeiðlóaGuðrún Jónsdóttirgrunajons@gmail.com
HrafnHrefna Huld Helgadóttirhrefnahh@gmail.com
JaðrakanSteingerður Steinarsdóttirssteinars@talnet.is
KríaJóhanna Benediktsdóttirjohben@simnet.is
HaförnRagna Gestsdóttirragna@birtingur.is
HimbrimiEyþór Ingi Jónssoneythor@akirkja.is
SílamáfurBjarki Sigurðssonbjarkisigurdss@gmail.com
ÓðinshaniFannar Sigurðssonfannar170800@hotmail.com
HrossagaukurSigurjón Einarssonsigure@simnet.is
SnjótittlingurÍsak Hugi Einarssonisakhugi@gmail.com
MaríuerlaHulda Signý Gylfadóttirhuldasigny@gmail.com
SkógarþrösturHalldór Bergmannhalldorb45@gmail.com
MúsarrindillSnorri Valssonsnorrivalsson63@gmail.com
SendlingurÞórir Þórissondoddibyggir@gmail.com
DEILA