Ísafjarðarbær býður út lengingu Sundabakka

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum verkið: Ísafjörður: Lenging Sundabakka 2021

Verkið felst í byggingu um 380 m stálþilskants ásamt kantbita, pollum og stigum.

Helstu magntölur:

  • Reka niður 254 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ28-750 og ganga frá stagbitum og stögum.
  • Steypa 99 akkerissplötur
  • Steypa um 380m langan kantbita með pollum, kanttré og stigum.
  • Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 28.200 m³.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. júlí 2022.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu og skal þeim skilað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. maí 2021.

DEILA