Af réttlátum og óréttlátum umskiptum

Sumardagurinn fyrsti var hefðbundinn að þessu sinni hvað veðrið varðar, þótt hátíðarhöldin hafi vantað. Nú er um að gera að draga fram sólgleraugun og stuttbuxurnar og hefjast handa við að telja okkur sjálfum trú um að sumarið sé komið! 

Sumardaginn fyrsta bar upp á sama dag og dag jarðar, sem er alþjóðlegur dagur til áminningar um mikilvægi umhverfisverndar. Ef okkur á að verða ágengt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum þyrftu allir dagar að vera tileinkaðir jörðinni; gagngerar breytingar á atvinnu- og lifnaðarháttum eru óumflýjanlegar. 

Alþjóðlega verkalýðshreyfingin hefur þróað ramma utan um breytingar á vinnumarkaði undir yfirskriftinni réttlát umskipti. Markmiðið með réttlátum umskiptum er að tryggja réttindi og lífsviðurværi fólks í gegnum breytingar á atvinnu- og lifnaðarháttum vegna loftslagsbreytinga. Samhliða því er tekist  á við áhrif nýrrar tækni, gervigreindar og sjálfvirknivæðingar. Grunnstefið er að breytingarnar þurfi að vera réttlátar gagnvart launafólki, ekki síst í þeim atvinnugreinum sem munu gjörbreytast eða jafnvel hverfa. Eins og staðan er í dag hefur skort á þessi gleraugu þegar ráðist er í aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og tæknibreytingar hafa heldur orðið til að auka á hlut hinna fáu í verðmætum samfélagsins. Þessari þróun þarf að snúa við.

Ein af þeim starfsstéttum sem mun ekki hverfa vegna tæknibreytinga er umönnun. Reyndar er talið að til framtíðar muni vægi starfa í umönnun, heilbrigðisþjónustu og menntun sífellt aukast. Þar er ekki svo auðvelt að skipta manneskjunni út. Þetta þarf að hafa í huga við mótun framtíðarumhverfis öldrunarþjónustu, svo dæmi sé tekið. Þessi afstaða birtist þó hvergi í þeirri tilfærslu á rekstri hjúkrunarheimila sem nú stendur yfir, þar sem ríkið fríar sig ábyrgð á kjararýrnun starfsfólksins. Í vikunni sendi miðstjórn ASÍ frá sér ályktun þar sem minnt er á ábyrgð ríkisins á kjörum starfsfólks hjúkrunarheimila. Það er nefnilega ríkið sem setur rammann utan um reksturinn og ákvarðar daggjaldið, sem er svo lágt að það felur beinlínis í sér hvata til að greiða lægstu mögulegu laun. Hér eiga sér því stað óréttlát umskipti, þar sem starfsfólk er látið borga brúsann og stéttarfélög sem hafa barist duglega fyrir hagsmunum þessar láglaunahópa eru send ár og jafnvel áratugi aftur í tímann. Við þetta verður ekki unað!

Góða helgi,

Drífa Snædal

forseti ASÍ

DEILA