236 umsóknir um Lóu nýsköpunarstyrki

Nýverið lauk umsóknarfresti um Lóu-nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Alls bárust 236 umsóknir. Þessi mikli fjöldi umsókna er lýsandi fyrir fjölbreytt og öflugt nýsköpunarstarf  um allt land en markmiðið með styrkjunum er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Heildarfjárhæð styrkja  er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir. 

Nú er unnið að því að yfirfara og meta umsóknirnar og verður tilkynnt um það hverjir hljóta styrki úr þessari fyrstu úthlutun á Lóu-nýsköpunarstyrkjum í lok maí.

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.  

DEILA