Í síðustu viku tóku Vestfirðir og Vestfjarðaleiðin yfir Instagram reikning Íslandsstofu @inspiredbyiceland með aðstoð ljósmyndarans Benjamin Hardman.
Benjamin ferðaðist um Vestfjarðaleiðina og tók myndir og sagði sögur í tengslum við Vestfirði.
Myndefnið frá Vestfjarðaleiðinni náði til um 500.000 einstaklinga meðan á yfirtökunni stöð og er enn hægt að skoða þetta flotta myndefni inn á reikningi Íslandsstofu undir highlights.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Íslandsstofu.