Umhverfisstofnun vill breyta reglum um friðlandið á Hornströndum

Umhverfisstofnun leggur nú fram tillögur að breytingum á tveimur af 15 sérreglum sem settar eru fram í stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Hornstrandir sem kom út árið 2019.

Fyrri reglan sem Umhverfisstofnun leggur til breytingar á er regla númer 2 sem hljóðar svo núna
Kvikmyndataka og ljósmyndun skal ekki trufla dýralíf innan friðlandsins og truflun við aðra gesti skal vera í lágmarki. Kvikmyndataka og ljósmyndun sem getur haft áhrif á náttúru svæðisins og upplifun gesta er háð leyfi Umhverfisstofnunar. Stofnuninni er heimilt að setja skilyrði þegar slík leyfi eru veitt. Sótt skal um leyfi til kvikmyndatöku innan friðlandsins ekki seinna en 30. maí ár hvert.

Ástæða þess að breytingar á reglunni eru lagðar til er að fjöldi aðila sem hafa áhuga og áform um að kvik- eða ljósmynda hefur aukist samhliða því að viðkoma refs hefur ekki verið sem skyldi á undanförnum árum. Það er mat þeirra sérfræðinga sem stundað hafa rannsóknir á lífríki svæðisins að takmarka skuli fjölda veittra leyfa á þeim tíma sem refurinn er viðkvæmastur fyrir truflun og að aðeins skuli veita tvö leyfi til myndatöku við greni í Hornvík. Truflun umfram það auk hefðbundinnar umferðar um svæðið er líkleg til að hafa neikvæð áhrif á afkomu refastofnsins á svæðinu. 
Umhverfisstofnun leggur einnig til breytingu þess efnis að sækja skuli um leyfi til drónaflugs og kvikmyndatöku innan friðlandsins fyrir tímabilið 1. maí – 31. ágúst fyrir 30. mars ár hvert í stað 30. maí. Með þessari breytingu er tryggt að sérfræðingur á svæðinu sé ekki farinn inn á svæði og hafi því tök á að gera áhrifamat fyrir hverja umsókn. Með þessum hætti munu umsækjendur einnig fá svar við sinni umsókn fyrr og því rýmri tími til undirbúnings ef leyfi er veitt.  

Umhverfisstofnun leggur til að regla númer 2 muni hljóða svo:
Þess skal gætt að kvikmyndataka og ljósmyndun trufli hvorki dýralíf né gesti friðlandsins. Öll kvikmyndataka og ljósmyndun sem krefst aðstöðu, viðveru við greni, mannafla eða tækjabúnaðar er ávallt háð leyfi Umhverfisstofnunar. Stofnuninni er heimilt að setja skilyrði þegar slík leyfi eru veitt, til að mynda varðandi umgengni, fjarlægðarmörk, tímasetningar myndatöku, rekstur rafstöðva og fleira. Sótt skal um leyfi til ljósmyndunar og kvikmyndatöku innan friðlandsins fyrir tímabilið 1. maí til 31. ágúst ár hvert, ekki seinna en 30. mars. Vegna lífríkisverndar er fjöldi leyfa til myndatöku við greni í Hornvík takmarkaður við tvö leyfi á tímabilinu 1. maí -31. ágúst. Byggja skal val á umsóknum á hæfni og reynslu umsækjanda. 

Seinni reglan sem Umhverfisstofnun leggur til breytingar á er regla númer 10 sem hljóðar svo núna
Óheimilt er að lenda flugvélum innan friðlandsins utan lendingarstaða sem skilgreindir eru samkvæmt aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Landeigendum er heimilt að lenda á sínu landi. Undanskilið banninu eru leitar- og björgunaraðgerðir og starfsemi Landhelgisgæslunnar, sbr. reglugerð nr. 60/1998 og reglugerð nr. 1185/2012, sbr. kafla 3.12.

Ástæða þess að lagðar eru til breytingar á reglunni er að ósk hefur borist frá landeiganda í Höfn um að heimilt verði fyrir þá að heimila lendingar á landi sínu þegar um er að ræða ferðir á þeirra vegum vegna eftirlits og viðhalds. 

Umhverfisstofnun leggur því til að regla númer 10 muni hljóða svo: 
Óheimilt er að lenda flugvélum innan friðlandsins utan lendingarstaða sem skilgreindir eru samkvæmt gildandi aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar. Undanskilið banninu eru ferðir landeiganda sem lenda á sínu landi eða eða aðila á þeirra vegum sem sinna eftirliti og viðhaldi eigna eða flutningi á vistum og birgðum vegna nýtingar og viðhalds eigna. Undanskilið banninu eru leitar- og björgunaraðgerðir og starfsemi Landhelgisgæslunnar, sbr. lög nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands, lögreglulaga nr. 96/1996 og reglugerð um leit og björgun á landi og samstarf lögreglu og björgunarsveita nr. 289/2003. 

Frestur til að senda inn athugasemdir og ábendingar er til og með 7. maí 2021

DEILA