Um 94% ætla að þiggja bólusetningu við COVID

Um 94% landsmanna hafa þegið eða hyggjast þiggja bólusetningu gegn kórónuveirunni COVID-19.

Af þeim sem höfðu eða hugðust afþakka bólusetningu voru 5% sem sögðust afþakka bólusetningu með bólefni AstraZeneca ef þeim yrði boðin bólusetning með bóluefninu. Færri sögðust hafa eða ætla að afþakka bóluefni frá Moderna (3%), Janssen (3%) og Pfizer (2%). Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var í mars 2021.

Lítill munur reyndist á afstöðu svarenda eftir kyni eða búsetu.

Svarendur 68 ára og eldri reyndust líklegastir til að segjast munu þiggja eða hafa þegið bóluefni (97%) en svarendur á aldrinum 18-29 ára ólíklegastir (93%). Lítill munur var þó á milli aldurshópa á hlutföllum þeirra sem kváðust ætla að afþakka einstök bóluefni.

Öllu meiri mun var þó að finna á svörun eftir stjórnmálaafstöðu svarenda. Stuðningsfólk Samfylkingarinnar (99%), Vinstri-grænna (98%) og Sjálfstæðisflokksins (95%) reyndist líklegast allra til að þiggja bóluefni en stuðningsfólk Miðflokksins (77%) ólíklegast.

DEILA