Þorsteinn ráðinn framkvæmdastjóri Bláma

Þorsteinn Másson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bláma, samstarfsverkefnis Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðastofu.

Þorsteinn hefur frá árinu 2016 starfað sem sérfræðingur á viðskiptaþróunarsviði hjá Arnarlaxi, þar sem hann fór fyrir leyfismálum og stýrði uppbyggingaráformum félagsins við Ísafjarðardjúp, ásamt öðrum verkefnum á viðskiptaþróunarsviði félagsins. Hann er formaður hafnarstjórnar Bolungarvíkurkaupstaðar.

„Ég hef lengi haft áhuga á nýsköpun og þróun á svæðinu og hef mikla trú á að vestfirskt atvinnulíf geti og þurfi að nýta sér tækifæri sem felast í tækniþróun og nýsköpun á sviði orkumála, sjálfbærni og matvælaframleiðslu. Þannig gætu vestfirsk fyrirtæki, með aðstoð Bláma, Landsvirkjunar, Vestfjarðastofu og Orkubús Vestfjarða orðið leiðandi á landsvísu á ákveðnum sviðum nýsköpunar í orkunýtingu,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og er með vélstjórnarréttindi. Hann er mikill útivistarmaður og býr ásamt eiginkonu sinni Katrínu Pálsdóttur og tveimur börnum í Bolungarvík.

DEILA