Patreksdagurinn 2021

Frá Patreksfirði. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Í tilefni Patreksdagsins á Patreksfirðir sem verður miðvikudaginn 17. mars n.k. verður ýmislegt í boði:

Patreks­dag­urinn er hátíð haldin 17. mars til þess að minnast Heilags Patreks, eins af vernd­ar­dýr­lingum Írlands. Hátíðin er á þjóð­há­tíð­ar­degi Írlands og er dagurinn haldinn hátíð­legur ár hvert.

*Kvikmyndin Raya and the last dragon verður sýnd í Skjaldborgarbíói kl. 16:30
*Brenna við Múlann ásamt flugeldasýningu kl. 18:30
*Grænt þema verður í mötuneyti skólanna í hádeginu
*Grænt bakkelsi til sölu í Albínu ásamt Patreksdagstilboði á ís úr vél
*Vel valin græn tilboð í Fjölval
*Patrekskveðja á samfélagsmiðlum frá Tónlistarskóla Vesturbyggðar
*Vesturbyggð mun gleðja íbúa og starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Patreksfirði með grænu bakkelsi í tilefni dagsins
*Spilakvöld á Vestur restaurant – Tilboð á barnum í tilefni dagsins
*Írsk-íslensk stemning með tilboðum á barnum á FLAK 19. og 20. mars.

*Trúbador og alvöru kráarstemning á laugardagskvöldiðVið minnum fólk á að gæta að sóttvörnum og þeir sem vilja geta séð brennuna úr bílum sínum á brennusvæðinu.

DEILA